torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Fréttir | 04. mars 2010 - kl. 10:27
Spegill fortíðar - silfur framtíðar
Fyrirlestraröð vitafélagsins
Nú á fimmtudaginn verður mánaðarlegur fræðslufundur Vitafélagsins. Efnið er að venju áhugavert og eru fyrirlesarar tveir þau Helga Katrín Tryggvadóttir og Kristján Sveinsson sem á stundum hefur verið stjórnarmaður í Vitafélaginu.
Nánar er efni fyrirlestranna þetta :
 
Þær fiska sem róa. Helga Katrín Tryggvadóttir segir frá rannsókn sem hún gerði fyrir  Samgönguráðuneytið árið 2008. Markmiðið var að kanna fjölda þeirra kvenna sem sækja sjóinn á Íslandi, starfsaðstæður, upplifun af starfinu og viðhorfum samfélagsins. Hlutfall kvenna af sjómönnum hefur verið og er ekki í dag mjög hátt en konur á Íslandi hafa þó stundað sjómennsku um aldir. Ekki virðist mikið um mismunun eða fordómum í garð kvenna hérlendis og skýringin á því hvers vegna konur stunda ekki sjómennsku í meira mæli vera að finna í menningarlegum normum fremur en ótta við fordóma.
 
Hafnir landsins. Fyrir skömmu kom út mjög áhugaverð bók um hafnir Íslands. Höfundur bókarinnar, Kristján Sveinsson, sagnfræðingur, sem einnig er einn höfunda bókarinnar Vitar á Íslandi,  fræðir gesti um þennan merka menningararf.
 
Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin
Grandagarði, 101 Reykjavík
Fimmtudaginn 4. mars klukkan 20:0

 
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti. Frítt er inn eins og kunnugt er en unnt að kaupa kaffi í hléinu á vægu verði.
Með félagskveðju.
Stjórnin
Agnes

Til baka

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL