torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Fréttir | 08. febrúar 2010 - kl. 14:12
Nýtt vísindarit um fornleifarannsóknir að Hofstöðum

Afrakstur og niðurstöður rannsókna Fornleifastofnunar Íslands á víkingabyggð að Hofstöðum í Mývatnssveit hefur nú verið gefin út í veglegu riti. Hofstaðaminjar eru með þekktustu fornleifum á landinu. Á árunum 1991 - 2002 gerði alþjóðlegur hópur vísindamanna þar umfangsmiklar fornleifarannsóknir. Var verkefnið unnið með stuðningi Rannís, National Geographic og fleiri aðila. Við lok uppgraftar tók við úrvinnsla og sérfræðirannsóknir sem stóðu yfir í átta ár og er þeim nú lokið. Ritstjóri verksins er Dr. Gavin Lucas, en að bókinni koma 45 vísindamenn á mörgum sviðum fornleifafræði, fornvistfræði, jarðvegsfræði og skyldra greina. Þar er varpað nýju ljósi á forsögu Hofstaða, framvindu landnáms í lok landnámsaldar, aðlögun fólks og áhrif manns á umhverfið.

Verkið markar tímamót í íslenskri fornleifafræði og mun setja ný viðmið við útgáfu á niðurstöðum uppgrafta en það er um 500 blaðsíður að lengd með yfir 200 teikningum og myndum. Bókin er á ensku með liprum og greinargóðum útdrætti á íslensku.

Tekið er við fyrirspurnum og pöntunum á skrifstofu Fornleifastofnunar Íslands eða á kristborg(hjá)instarch.is


Agnes

Til baka

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL