torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Fréttir | 03. febrúar 2010 - kl. 13:04
Spegill fortíðar - silfur framtíðar
Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar

Spegill fortíðar – silfur framtíðar

Er yfirskrift fyrirlestra sem Íslenska vitafélagið stendur fyrir í Sjóminjasafni Reykjavíkur –Víkinni. Fimmtudagskvöldið 4. febrúar kl. 20:00 verður tveimur merkum stöðum gerð skil í máli og myndum. Agnes Stefánsdóttir segir frá fornminjum á Reykjanesi og frá Reykjanesvita og safnvörðurinn Finnbogi Bernódusson mætir í fornum sjóklæðum og ræðir um Ósvör. Umfærður og kaffi.

Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar

Reykjanesviti –  á Valahnjúk á Reykjanesi var 1. desember 1878 tekinn í notkun fyrsti viti landsins. Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins ræðir um vitann og fornminjar á Reykjanesi.

Ósvör – ein elsta verstöð Íslands  og eitt helsta aðdráttarafl Bolungarvíkur. Finnbogi Bernódusson, safnvörður í Ósvör segir frá þessari gömlu verbúð sem m.a. geymir salthús, fiskihjalla, sexæring, dráttarspil, fiskireit og útihjalla sem gefa staðnum blæ liðinna tíma.

Hvernig getum við nýtt söguna og menningararfinn til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar?  Eigum við ónýttan arf við strendur landsins sem auðvelt og fyrirhafnarlítið er nýta til nýsköpunar og atvinuuppbyggingar?

Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin

Grandagarði, 101 Reykjavík


Agnes

Til baka

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL