 |
| Við undirritun samnings við Loftmyndir ehf janúar 2010. | Fréttir | 18. janúar 2010 - kl. 15:25 Undirritun samnings við Loftmyndir ehf
Fornleifavernd ríkisins og Loftmyndir ehf skrifuðu nýlega undir samning um rekstur kortasjár á heimasíðu Fornleifaverndar.
Kortasjánni verður ætlað að vera upplýsingarbrunnur um fornleifar og fornleifaskráningu á Íslandi. Með kortasjánni er einnig ætlað að auka rafræna þjónustu Fornleifaverndar, þ.e.a.s. að skráningaraðilar geti skilað inn skráningargögnum rafrænt á samræmdan máta. solborg2
Til baka
|