torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Natur og Kulturarv
Natur og Kulturarv
Fréttir | 13. janúar 2010 - kl. 15:23
Náttúra, menningarminjar og atvinnusköpun
Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar til atvinnusköpunar og þróunar.

Náttúra, menningarminjar og atvinnusköpun – Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar til atvinnusköpunar og þróunar.

Velkomin á norrænu ráðstefnuna „Náttúra, menningarminjar og atvinnusköpun“ þar sem við munum skoða hvernig nýta má umhverfið sem grunn í sjálfbærri þróun og nýsköpun. Áherslan verður á þá samvinnu milli einkaaðila og hins opinbera sem nauðsynleg er til að hægt sé að nýta fjölbreytileika umhverfisins fyrir sjálfbæra efnahagslega þróun, bæði vistvæna, félagslega og menningarlega. Maður og náttúruöfl hafa skapað það umhverfi og landslag sem við búum við í dag. Við veltum fyrir okkur hvernig framtíðin verður á landsbyggðinni á Norðurlöndum.

Um er að ræða aðra ráðstefnu af fjórum þar sem fjallað er um nýtingu náttúru og menningarminja. Ráðstefnurnar eru haldnar af Norrænu Ráðherranefndinni og tíu norrænum stofnunum á sviði náttúru og menningarminja.

Ráðstefnan er einkum ætluð fyrirtækjum, rannsóknarstofnunum, opinberum stofnunum og stjórnvöldum sem hafa áhuga á atvinnusköpun og sjálfbærri nýtingu náttúru og menningarminja.

Ráðstefnan verður haldin í Åbo höll, Åbo, Finnlandi 10. - 11. febrúar 2010.

Tungumál ráðstefnunnar eru enska og sænska. Ráðstefnugjald er 30 € og er matur innifalinn. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 25. janúar til að vera öruggur um pláss. Íslenskir, færeyskir og grænlenskir þátttakendur geta sótt um ferðastyrk til þátttöku á ráðstefnunni.

Nánari upplýsingar fást hjá Maria Kurten hjá Museiverket í Finnlandi (maria.kurten@nba.fi) og á heimasíðu ráðstefnunnar: www.raa.se/naturochkulturarv


Agnes

Til baka

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL