Fréttir | 22. desember 2009 - kl. 12:51 Vatnsdæla og fornleifar - Medieval Archaeology 2009
Út er komið hjá Maney Publishing í Bretlandi 53 árgangur (2009) af Medieval Archaeology. Á meðal efnis er grein eftir minjavörð Norðurlands vestra, Þór Hjaltalín, sem ber heitið: “The Historic Landscape of the Saga of the People of Vatnsdalur: Exploring the Saga Writer´s Use of the Landscape and Archaeological Remains to Serve Political Interests”. Greinina má nálgast á vesslóðinni: http://www.ingentaconnect.com/content/maney/med
Í rannsókninni eru Íslendingasögur notaðar á nýjan hátt til skilnings á tengslum þeirra við landslag og fornminjar. Í þeim tilgangi var Vatnsdælasaga notuð sem dæmi og valdir sögu- og minjastaðir í Vatnsdal skráðir og rannsakaðir. Sagan er talin rituð um 1270 og í þessari rannsókn var hún notuð sem leif, um hugmyndaheim og viðhorf höfundar hennar, en ekki sem frásagnarheimild um atburðatíma hennar á 10. öld. Á þann hátt „lýgur“ sagan ekki heldur veltur það á rannsakanda að túlka hana rétt sem heimildar um 13. öld. Sagan verður þannig mikilvægur vitnisburður um það hvernig höfundur notar sér landslag og minjar í Vatnsdal og gefur þeim merkingu og hlutverk. Hér er því haldið fram, að höfundur sögunnar, sem líklega kemur úr valdamikilli ætt, hugsanlega af ætt Hvammverja í Vatnsdal, notar landslag og fornminjar með markvissum hætti til að þjóna pólitískum hagsmunum sínum í lok 13. aldar. solborg2
Til baka
|