torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Fréttir | 22. desember 2009 - kl. 12:41
Aðgengi - Accessibility to Cultural Heritage

Út er komin skýrsla á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem ber heitið Accessibility to Cultural Heritage – Nordic Perspectives.  Ritið er afrakstur vinnu starfshóps sem í sátu fulltrúar frá Riksantikvaren í Noregi, Riksantikvarieämbetet í Svíþjóð, Kulturarvstyrelsen í Danmörku, Húsafriðunarnefnd ríkisins og Fornleifavernd ríkisins. Fyrir Íslands hönd sátu Magnús Skúlason fyrrverandi forstöðumaður Húsafriðunarnefndar og Þór Hjaltalín minjavörður Norðurlands vestra og fjalla þeir í skýrslunni um aðgengi að húsum og minjastöðum á Íslandi.  Skýrslan birtist í ritröðinni TemaNord og má nálgast á eftirfarandi vefslóð: http://www.norden.org/da/publikationer/publikationer/2009-572

 

Markmið hópsins var að fjalla um bætt aðgengi að minjastöðum og byggingum með menningarsögulegt varðveislugildi og var hópurinn samsettur af bæði fornleifafræðingum og arkitektum.  Tekin eru dæmi af byggingum og menningarlandslagi þar sem fjallað er um hvernig gera megi minjar aðgengilegar án þess að gengið sé um of á minjagildi þeirra, eins og t.d. upprunaleika, upplifunargildi, rannsóknargildi o.fl.  Sérstaklega var leitað lausna fyrir fólk sem býr við einhverskonar fötlun, eins og t.d. hreyfihömlun eða skerta sjón.


solborg2

Til baka

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Vefurinn er keyrður á SMALA XL