torf og grjót
skjaldarmerki FORNLEIFAVERND  
RÍKISINS
         
 

Tenglar

Innlendar stofnanir

Borgarminjavörður/Minjasafn Reykjavíkur - Minjavarsla í Reykjavík er á verksviði borgarminjavarðar og minjasafnið sinnir margvíslegum verkefnum á því sviði. Fornleifadeild Minjasafns Reykjavíkur sér um framkvæmdaeftirlit,  umhverfismat og fornleifaskráningu í Reykjavík

Húsafriðunarnefnd ríkisins stuðlar að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar og metur hvaða hús er rétt að friða hverju sinni og gerir um það tillögur til menntamálaráðherra.

MenntamálaráðuneytiðSkrifstofa menningarmála undirbýr mótun menningarstefnu, hefur umsjón með framkvæmd hennar og annast almenna stjórnsýslu á sviði menningarmála. Þar er m.a. fjallað um málefni lista og menningararfs, fjölmiðlamál og mál er varða íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.

Safnaráð - Safnaráð er fjölskipað stjórnvald og stjórnsýslunefnd. Menntamálaráðherra skipar Safnaráð til fjögurra ára í senn. Safnaráð er samráðsvettvangur starfsemi lista- og minjasafna og hefur eftirlit með söfnum sem hljóta ríkisstyrki. Safnaráð úthlutar árlega styrkjum úr Safnasjóði.

Skipulagsstofnun – Skipulagsstofnun sinnir afgreiðslu og veitir leiðbeiningar um skipulags- og byggingarmál og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.  

Umhverfisstofnun – Á Náttúruverndarsviði Umhverfisstofnunar er haft eftirlit með náttúru landsins og umsjón með náttúruverndarsvæðum. Unnið að undirbúningi að friðlýsingu svæða, höfð umsjón með gerð verndaráætlana fyrir náttúruverndarsvæði og skráningu náttúruminja. 

Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun í eigu íslenska ríkisins. Því er ætlað að vera miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga og stuðla að því að sem flestir geti haft gagn og gaman af sögu og minjum lands og þjóðar.

Örnefnastofnun Íslands safnar íslenskum örnefnum frá öllum tímum þjóðarsögunnar - skráir þau og varðveitir á aðgengilegan hátt eftir viðurkenndum fræðilegum kröfum.

Breiðafjarðarnefnd hefur það hlutverk að vera umhverfisráðherra til ráðgjafar um það sem lýtur að framkvæmd laga nr. 54/1995, um hver Breiðafjarðar. jafnframt skal nefndin í samráði við sveitarfélögin láta gera verndaráætlun og senda hana til ráðherra til staðfestingar. Í starfi sínu skal nefndin gæta samráðs við sveitarstjórnir, náttúruverndarnefndir, Náttúruvernd ríkisins, minjaverði og yfirvöld þjóðminjavörslu.

Þingvallanefnd og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum - Þingvallanefnd fer með yfirstjórn þjóðgarðsins, fyrir hönd Alþingis. Þingvellir voru samþykktir á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna 2. júlí 2004 á fundi heimsminjanefndarinnar sem haldinn var í Suzhou í Kína

Fyrirtæki og söfn

Byggðasafn Skagafjarðar – Fornleifadeild beitir sér fyrir rannsóknum á sviði fornleifafræði og menningarsögu í Skagafirði. Deildin tekur einnig að sér ýmis önnur verkefni tengd fornleifafræði utan héraðs svo sem fornleifaskráningu og rannsóknir.

Fornleifastofnun Íslands Ses. er sjálfseignarstofnun. Tilgangur hennar er að efla rannsóknir og útgáfustarfsemi á sviði fornleifafræði og skyldra greina ásamt því að sinna fornleifarannsóknum, fornleifaskráningu, umhverfismati, ráðgjöf o.fl.

Fornleifafræðistofan ehf. er sjálfstætt starfandi rannsóknar- og þjónustufyrirtæki. Hún sinnir fornleifarannsóknum, fornleifaskráningu, umhverfismati, rannsóknarköfun, greiningu menningarlandslags, aðstoð við uppsetningu sýninga, ráðgjöf o.fl.

Sarpur – Menningarsögulegt gagnasafn sem rekið er sem rekstrarfélag. Meginmarkmið með Sarpi er að varðveita menningarsögulegar upplýsingar hjá Þjóðminjasafni Íslands, Fornleifavernd ríkisins, Húsafriðunarnefnd ríkisins, Örnefnastofnun Íslands og sambærilegum stofnunum og fyrirtækjum

Félagasamtök og sjóðir

Fornleifasjóður úthlutar styrkjum til fornleifarannsókna, forvörslu, minjaverndar, fornleifaskráningar og annarra verkefna sem stjórn sjóðsins metur styrkhæf. Tilgangur sjóðsins er stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornleifum og forngripum.

Íslenska vitafélagið – Áhugafélag um vita og strandmenningu

Norræni menningarsjóðurinn hefur að markmiði að stuðla að aukinni þátttöku almennings í norrænu menningarsamstarfi og stuðla að þróun menningarlífs á Norðurlöndum, nýsköpun, tilraunastarfi og þverfaglegu samstarfi.

Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða.

Þjóðhátíðarsjóður - Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.

Erlendar stofnanir

Norðurlönd
KUAS (Kulturarvestyrelsen) í Danmörku –
www.kuas.dk
Museiverket í Finnlandi - http://www.nba.fi./en/
Norræna heimsminjaskrifstofan - http://www.nwhf.no/
Riksantikvaren í Noregi – www.ra.no
Riksantikvarieämbetet í Svíþjóð – www.raa.se

Evrópa
English Heritage –
www.english-heritage.org.uk
Evrópsku menningarminjadagarnir -
Herein (the European Heritage Network) –
www.european-heritage.net

Annað
Heimsminjar – UNESCO -
http://whc.unesco.org/
ICCROM – www.iccrom.org
ICOMOS – www.icomos.org

Kirkjuminjar

Biskupsstofa – Biskupsstofa er embættisskrifstofa Biskups Íslands og skrifstofa Kirkjuráðs og kirkjuþings. Biskupsstofa annast almennt fyrirsvar vegna Þjóðkirkjunnar og sameiginlegra mála hennar, samskipti og samstarf við hinar ýmsu stofnanir svo og erlend samskipti.

Kirkjan.is – Upplýsingavefur Þjóðkirkjunnar. Hér má finna upplýsingar um Prófastsdæmi, sóknir og kirkjur á Íslandi.

Garður.is – upplýsingar um kirkjugarða á Íslandi með kortum, texta, myndum og teikningum.

Ýmislegt (rannsóknir ofl.)

Hólarannsóknin er þverfagleg vísindarannsókn undir stjórn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Að rannsókninni koma innlendir og erlendir sérfræðingar úr flestum greinum menningarsögulegra rannsókna.

Hólaskóli staðarvarðanám -  námskeið fyrir verðandi staðarverði, samvinna Fornleifaverndar ríkisins, Hólaskóla, Húsafriðunarnefndar ríkisins, Þjóðminjasafns Íslands og Byggðasafns Skagafjarðar.

 

 

Friðlýsingaskrá

Rannsóknarleyfi eyðublað

Rafræn skil




Skógræktarátak

HEREIN

Evrópski menningarminjadagurinn m texta

 
 
 

 

©Fornleifavernd ríkisins • Suðurgötu 39 • 101 Reykjavík • Sími: 555 6630 • Bréfsími: 555 6631 • kt.: 691001-2960 • fornleifavernd@fornleifavernd.is
Teljari: 5352
Vefurinn er keyrður á SMALA XL