|
Stofnunin og hlutverk hennar
Fornleifavernd ríkisins er stjórnsýslustofnun sem heyrir undir menntamálaráðherra. Stofnunin hóf starfsemi sína þann 15. október 2001 og er staðsett á fimm stöðum, á Suðurgötu 39 í Reykjavík, Stykkishólmi, Sauðárkróki, Akureyri og Egilsstöðum. Fornleifavernd ríkisins starfar samkvæmt þjóðminjalögum nr. 107/2001, ákvæðum í lögum um flutning menningarverðmæta til annarra landa nr. 105/2001 og lögum um húsafriðun nr. 104/2001. Markmið þjóðminjalaga og hlutverk Fornleifaverndar ríkisins er að tryggja eftir föngum varðveislu menningarsögulegra minja í eigin umhverfi, auðvelda aðgang og kynni þjóðarinnar af þeim og greiða fyrir rannsóknum. Helstu verkefni stofnunarinnar eru þessi:
• Stefnumörkun þjóðminjavörslunnar í samvinnu við þjóðminjavörð • Eftirlit með fornleifum, fornleifarannsóknum og gripum í kirkjum landsins • Leyfisveitingar vegna allra staðbundinna og tímabundinna rannsókna • Stefnumótun vegna skráninga fornleifa, minningarmarka og kirkjugripa • Umfjöllun og leyfisveitingar vegna förgunar fornleifa • Umfjöllun og leyfisveitingar vegna flutnings og förgunar kirkjugripa • Friðlýsing fornleifa, minningarmarka og kirkjugripa • Merking friðlýstra fornleifa • Umsagnir vegna skipulagsvinnu og umhverfismats • Umsagnir vegna friðunar og breytinga á húsum • Ráðgjöf um varðveislu og kynningu menningarsögulegra minja • Ráðgjöf vegna skráningar, rannsókna og varðveislu fornleifa • Leiðbeiningar vegna kostnaðaráætlana og framkvæmda rannsóknarverkefna • Útboð vegna fornleifarannsókna
|