Fréttir | 01. september 2010 - kl. 09:22 Evrópski menningarminjadagurinn 2010 Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 5. september 2010. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Fornleifavernd ríkisins mun bjóða upp á ýmsa viðburði um allt land í tilefni dagsins. Meira |
Fréttir | 30. ágúst 2010 - kl. 15:44 Hverjir voru skrælingjar? Dr. William Fitzhugh heldur fyrirlestur á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16, mánudaginn 30. ágúst kl. 17:00 Dr Fitzhugh er forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar um heimskautafræði við Smithsonian stofnunina í Wasington D.C Hann fæst fyrst og fremst við rannsóknir á frumbyggjum heimskautasvæðisins í austurhluta Kanada og hefur ritað fjölda bóka og greina um fræðasvið sitt. Meira |
Fréttir | 18. ágúst 2010 - kl. 13:10 Fornleifar á Bæ í Bæjarsveit, Borgarfirði Í byrjun júlí skoðuðu starfsmenn Fornleifaverndarinnar fornminjar sem komu í ljós við jarðvegsskipti framan við kirkjuna á Bæ í Bæjarsveit. Grafið hafði verið um 2 m niður á móbergshellu þegar minjarnar komu í ljós. Meira |
Fréttir | 06. júlí 2010 - kl. 20:09 Fornleifar á Þingmúla Undanfarið hafa starfsmenn Fornleifaverndar verið að kanna minjar er komu í ljós þegar gamalt steypt íbúðarhús á hlaðinu á Þingmúla var rifið en Guðmundur Ármannsson, bóndi á Vaði, og Sigurbjörn Árnason, bóndi á Þingmúla, létu vita um fundinn. Snið og botn grunnsins hafa nú verið hreinsuð og teiknuð upp. Minjavörður Austurlands, Inga Sóley Kristjönudóttir, telur líklegt að um gamla bæjarstæðið sé að ræða. Meira |
 |
| Natur og Kulturarv | Fréttir | 30. júní 2010 - kl. 10:41 Náttúra, menningarminjar og ferðaþjónusta Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar í ferðaþjónustu. Um er að ræða þriðju ráðstefnu af fjórum þar sem fjallað er um nýtingu náttúru og menningarminja. Ráðstefnurnar eru haldnar af Norrænu Ráðherranefndinni og tíu norrænum stofnunum á sviði náttúru og menningarminja.
Ráðstefnuna átti að halda í apríl síðastliðnum en frestaðist vegna eldgoss í Eyjafjallajökli. Meira |
 |
| Þjóðminjavarðafundur Norðurlanda 2010 | Fréttir | 28. júní 2010 - kl. 16:23 Árlegur fundur þjóðminjavarða Norðurlanda Um helgina fór fram hinn árlegi fundur þjóðminjavarða Norðurlanda. Fundurinn fór fram á Ísafirði og Stykkishólmi. Á fundinn mættu aðilar frá Danmörk, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Grænlandi en þetta er í fyrsta skipti sem þeir sitja þennan fund. Fyrri daginn fór hver stofnun yfir sín áherslumál og stefnu en auk þess voru ýmis samvinnuverkefni kynnt fyrir fundargestum. Seinni daginn var haldinn seminar um hinn stafræna menningararf. Meira |
Fréttir | 14. maí 2010 - kl. 11:42 Laus störf hjá Fornleifavernd ríkisins Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýsa nú eftir umsóknum um störf við tímabundin átaksverkefni á vegum ráðuneyta og undirstofnana þeirra. Störfin eru opin öllum sem eru á atvinnuleysisskrá og námsmönnum sem eru á milli anna eða skólastiga. Opnað verður fyrir umsóknir á www.vmst.is miðvikudaginn 12. maí en umsóknarfrestur er til 19. maí, sjá síðu Vinnumálastofnunar. Nokkur störf hjá Fornleifavernd ríkisins eru auglýst þar á meðal. Meira |
Fréttir | 28. apríl 2010 - kl. 09:49 Ráðstefna um björgunar- og framkvæmdatengdar fornleifarannsóknir Þann 8. maí nk. gengst Félag íslenskra fornleifafræðinga fyrir ráðstefnu um björgunar- og framkvæmdatengda uppgrefti í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við safnið og Fornleifavernd ríkisins. Björgunaruppgreftir eru orðnir stór hluti þeirra verkefna sem fornleifafræðingar fást við. Þar eru forsendur hins vegar allt aðrar en við rannsóknaruppgrefti þar sem fræðimenn velja sér uppgraftarstaði eftir rannsóknaráhuga. Fjallað verður um helstu niðurstöður slíkra uppgrafta frá síðustu árum (2007-2009) en þó er markmiðið fyrst og fremst að skapa umræðu um björgunaruppgrefti, framkvæmd þeirra, umgjörð, rannsóknaspurningar og ekki síst hvað verður um upplýsingarnar sem safnast. Ráðstefnan er öllum opin. Meira |
Fréttir | 27. apríl 2010 - kl. 14:13 Endurgerð Bláskeggsárbrúar lokið Gamla brúin yfir Bláskeggsá í Hvalfirði var endurvígð 22. apríl s.l. Brúin var upphaflega byggð árið 1907. Bygging hennar var brautryðjandaverk, því hún var fyrsta steinsteypta brú á Íslandi, utan Reykjavíkur. Árið 2007 var skipuð nefnd með fulltrúum frá Fornleifavernd ríkisins, Hvalfjarðarsveit og Vegagerðinni sem falið var að vinna að endurgerð brúarinnar. Brúin hefur nú verið færð í upprunalegt horf og upplýsingaskilti sett upp í nágrenni hennar. Meira |
Fréttir | 19. apríl 2010 - kl. 09:35 Hofstaðir í fortíð og framtíð Á Hofstöðum í Mývatnssveit hafa farið fram umfangsmiklar fornleifarannsóknir undanfarin ár. Í tilefni af útkomu rannsóknarritsins Hofstaðir - Excavations of a Viking Age Feasting Hall in North-Eastern Iceland er efnt til málþings á Narfastöðum í Reykjadal 24. apríl kl. 11:00-16:00. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Þóru Pétursdóttur, Fornleifastofnun Íslands ses, thora@instarch.is. Meira |
 |
| Natur og Kulturarv | Fréttir | 23. mars 2010 - kl. 14:18 Náttúra, menningarminjar og ferðaþjónusta Norræn ráðstefna þar sem fjallað er um hvernig nýta má náttúru og menningarminjar í ferðaþjónustu. Um er að ræða þriðju ráðstefnu af fjórum þar sem fjallað er um nýtingu náttúru og menningarminja. Ráðstefnurnar eru haldnar af Norrænu Ráðherranefndinni og tíu norrænum stofnunum á sviði náttúru og menningarminja. Meira |
Fréttir | 19. mars 2010 - kl. 15:11 Dagskrá ráðstefnu um fjarkannanir og minjavörslu Hér er dagskrá og útdrættir fyrirlestra ráðstefnunnar um fjarkannanir og minjavörslu sem haldin verður á Hótel Loftleiðum 25.-27. mars 2010. Meira |