|
Velkomin á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins
Fornleifavernd ríkisins er stjórnsýslustofnun sem heyrir undir menntamálaráðherra. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru á Suðurgötu 39 í Reykjavík en útstöðvar eru í Stykkishólmi, Bolungarvík, á Sauðárkróki, á Akureyri, á Egilsstöðum og á Skógum.
Fréttir | 19. mars 2012 - kl. 14:17 "Kvöð eða kostur?" Fornleifavernd ríkisins hefur borist samantekt Capacent vegna málþingsins "Kvöð eða Kostur" sem Fornleifavernd ríkisins hélt 18. nóvember 2011. Meira |
Fréttir | 19. mars 2012 - kl. 14:07 Úrskurður Fornleifanefndar vegna Böðmóðstungu Fornleifanefnd hefur úrskurðað vegna kæru í tilefni af synjun Fornleifaverndar ríkisins á leyfi til rannsóknar í Böðmóðstungu. Meira |
Fréttir | 29. febrúar 2012 - kl. 12:13 Stöng í Þjórsárdal, ásýnd og umhverfi, hönnunarkeppni Fornleifavernd ríkisins fékk nýlega styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða/Iðnaðar og ferðamálaráðuneyti vegna hönnunarsamkeppni sem er að hefjast um minjar í Þjórsárdal. Verkefnið nefnist: ,,Stöng í Þjórsárdal, ásýnd og umhverfi, hönnunarkeppni." Verkefnið er samvinnuverkefni Fornleifaverndar ríkisins, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og ferðamálafulltrúa uppsveita Árnessýslu. Meira |
Fréttir | 28. febrúar 2012 - kl. 12:06 Samstarfssamningur við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri undirritaður Fornleifavernd ríkisins og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri undirrituðu nýlega samning um aðkomu starfsfólks Fornleifaverndar ríkisins að kennslu við skólann. Fyrst og fremst er verið að hugsa til endurmenntunarnámskeiða og þá helst til aðila sem vinna ýmiss konar jarðvinnu sem hafa áhrif á fornleifar, En einnig er stefnt að því að nemendur vinni verkefni tengd fornleifavernd. Meira |
Fréttir | 22. febrúar 2012 - kl. 15:31 Uppsveitarbrosið Í gær, 21. febrúar, hlaut minjavörður Suðurlands, Uggi Ævarsson, Uppsveitarbrosið en það er viðurkenning sem veitt er árlega þeim aðila sem lagt hefur ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu og Flóa lið. Óskum Ugga til hamingju með þessa viðurkenningu. Meira |
Fréttir | 09. febrúar 2012 - kl. 13:30 Fyrirlestraröð FÍF og FFÍ 2012 Nú er hafin á ný fyrirlestraröð FÍF og FFÍ 2012 sem nú ber yfirskriftina Úr gnægtabúri úthaganna: sel og jaðarbyggð í íslenskri fornleifafræði. Í kvöld mun Albína Hulda Pálsdóttir fjalla um hvað vettvangsskráning segi okkur um seljarústir og Ásta Hermannsdóttir og Sindri Ellertsson Csillag fjalla um seljabúskap á norðanverðu Snæfellsnesi. Fyrirlestrarnir eru haldnir í kjallara húsnæðis Fornleifaverndar ríkisins að Suðurgötu 39 og hefjast kl. 20:00. Meira |
Fréttir | 13. desember 2011 - kl. 12:52 Endurgerð, viðhald og varðveisla fornleifa 6. janúar 2012 kl. 13 Fornleifavernd ríkisins boðar hér með til fundar föstudaginn 6. janúar 2012, kl. 13.00 og verður umræðuefnið endurgerð, viðhald og varðveisla fornleifa. Frummælandi verður Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins. Meira |
Fréttir | 30. nóvember 2011 - kl. 09:04 Vefsjá Fornleifaverndar ríkisins Mikið af fornleifafræðilegum gögnum hafa landfræðilega tilvísun og er því tilvalið að miðla upplýsingum um fornleifar á vefsjá. Fornleifavernd ríkisins er þessa dagana að taka í gagnið sína vefsjá. Í fyrsta áfanga
eru sýnd í vefsjánni þau svæði sem þegar hafa verið skráð á vettvangi með hlekk í skýrslu ef höfundar hafa gefið leyfi til. Unnið er að því að setja inn og yfirfara þessar upplýsingar en grunnvinnuna unnu
Margrét S. Kristjánsdóttir og Davíð Bragi Konráðsson. Meira |
 |
| Vígsla Bláskeggsbrúar 2010 | Fréttir | 11. nóvember 2011 - kl. 11:25 Fornleifavernd á Íslandi, kvöð eða kostur Fornleifaþing 18. nóvember 2011 Um þessar mundir eru tíu ár frá því að Fornleifavernd ríkisins hóf störf. Stofnunin stendur á tímamótum og mun væntanlega verða hluti nýrrar minjavörslustofnunar frá áramótum 2013. Vegna afmælisins og tímamótanna blæs Fornleifaverndin til þings í salnum Yale, á 2. h. á Hótel Sögu föstudaginn 18. nóvember frá kl. 13.00 til 17.00. Þar er ætlunin að líta örlítið yfir farinn veg, en fyrst og fremst að horfa til framtíðar og viðra þá möguleika og tækifæri sem liggja grafin í íslenskum fornleifum. Efni þingsins er: Fornleifavernd á Íslandi, kvöð eða kostur ? Meira |
Fréttir | 28. október 2011 - kl. 10:51 Spegill fortíðar - silfur framtíðar Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, Æðarrækt á Íslandi Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu stendur fyrir fræðslukvöldi í fyrirlestraröðinni Spegill fortíðar- silfur framtíðar á þriðjudaginn kemur í Sjóminjsafninu Víkinni, Grandagarði.
Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin, Grandagarði.
Þriðjudagskvöldið 2.nóvember kl. 20:00 Meira |
Fréttir | 06. september 2011 - kl. 15:38 Evrópski menningarminjadagurinn / European Heritage Days Evrópski menningarminjadagurinn verður haldinn hér á landi fimmtudaginn 8. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er menningarlandslag. Tilgangur Evrópska menningarminjadagsins er að vekja athygli alls almennings á gildi menningararfsins og að skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu.
Upphaf Evrópska menningarminjadagsins má rekja aftur til ársins 1985. Þá lagði Menningarmálaráðuneyti Frakklands til að Dagur sögulegra minja, sem þeir höfðu haldið árinu áður, næði til fleiri landa Evrópu. Fjölmargar Evrópuþjóðir svo sem Holland, Luxemburg, Malta, Belgía, Skotland og Svíþjóð hófu brátt að standa fyrir slíkum viðburðum. Evrópuráðið stofnaði opinberlega til Evrópska menningarminjadagsins árið 1991 með stuðningi Evrópusambandsins.
Allt frá því að til dagsins var stofnað á Evrópuvísu hefur gildi og mikilvægi dagsins vaxið með hverju ári. Fjöldi þátttökuþjóða hefur aukist með hverju árinu, frá ellefu þjóðum árið 1991 til fimmtíu þjóða í dag. Árangurinn hefur verið góður eins og sést best á heimsóknum tuttugu milljóna gesta til þeirra þrjátíu og tvö þúsund menningarminjastaða sem opnir hafa verið almenningi. Meira |
Fréttir | 06. júlí 2011 - kl. 14:55 Tvö ný upplýsingaskilti við friðlýstar minjar Fornleifavernd hefur í samstarfi við Vegagerðina endurnýjað tvö upplýsingaskilti nú í sumar við friðlýsta minjastaði, Borgarvirki og Hof í Vatnsdal. Meira |
|